Verndum börnin okkar fyrir óæskilegum áhrifum

Á meðan öll skynsamlega rök tala á móti útbreyðslu áfengis með auðveldara aðgengi og auglýsingum í fjölmiðlum eru öfl í samfélaginu sem hafa hagsmuni af sölu áfengis og reyna með ísmeygilegum háttum að vinna sig framhjá lögum sem ríkja í landinu, það dynja á okkur fréttir nánast daglega frá löndunum í kringum okkur og frá samtökum eins og SÁÁ  um skaðsemi áfengis og ömurleika sem milljónir manna um allan heim valda sér og fjölskyldum sínum með neyslu áfengis, brostnar vonir barna vegna vanmáttar foreldra sem eru föst í neyslu áfengis og annarra fíkniefna, það eru ekki bara lögráða manneskjur sem fylgjast með fjölmiðlum, við verðum að vernda börnin okkar fyrir óæskilegum áhrifum frá mönnum og konum sem með græðgi, von um gróða af sölu áfengis á beinan eða óbeinan hátt, hreinlega ögra lögunum og reka áróður um dreifingu áfengis ekki bara í fjölmiðlum heldur einnig í þinginu, ekki heyrist í tryggingarfélögum sem þó verða fyrir verulegu tjóni af völdum áfengisneyslu í þjóðfélaginu, getur það verið að það sé vegna þess að þau eru meira og minna í eigu sömu aðilja og vilja komast yfir smásölu áfengis, sennilega er áfengislöggjöfin einna frjálslegust í Bretlandi pöbbar út um allt og áfengissala í öllum sjoppum og matvöruverslunum, þar í landi er áfengisneysla að sliga heilbrigðiskerfið og yfirvöld að vakna upp af vondum draum, við vitum það að sem ekki erum með hausinn í sandinum að öll fíkniefna neysla byrjar á neyslu fíkniefnisins "áfengi".  Því þroskaðri sem einstaklingurinn er sem í fyrsta sinn bragðar áfengi því ólíklegra er að sá hinn sami verði háður því eða öðru fíkniefni.  Gott fólk ýtum þessu ekki að börnunum okkar hvorki beint né óbeint.


mbl.is Ritstjóri tímarits sektaður fyrir áfengisauglýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svartur dagur í Reykjavík

Þetta er svartur dagur í pólitískri sögu Reykjavíkur og líkist helst miðaldar hallarbyltingu, myndin væri fullkomin ef fjórmenningarnir sem komu fram fyrir hönd flokkana sem nú taka við borginni væru klæddir í miðaldar trúðsgöllum, Björn Ingi stal lyklinum og hefur hleypt lýðnum inn um bakdyrnar eftir að hafa klofið meirihlutasamstarfið, maður saup hveljur yfir þeirri tilhugsun fyrir síðustu alþingiskosninga að Steingrímur J. og Ingibjörg Sólrún ættu möguleika á að leiða ríkistjórn, það varð þökk sé guði ekki að veruleika en þetta er stærri hörmung og hjálpi okkur allir vættir ef þetta lið fær að leika lausum hala um málefni Reykvíkinga fram að næstu kosningum, hvernig gat það gerst að örverpi úr framsókn fengi slíkt vald, þetta var sennilega síðasta tækifæri framsóknar til að rétta bátinn af og afla trausts á ný ef maðurinn hefði staðið með borgarstjóranum sínum í gegnum þennan stórsjó andmæla, sem voru að mestu réttmæt andmæli, og siglt inná lygnari haf að þá hefði hann komið stærri maður út úr því en hann kaus að stinga hann og samstarfsflokk sinn í bakið.


Um bloggið

Þór Karlsson

Höfundur

Þór Karlsson
Þór Karlsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband